Heim Upplýsingar Upplýsingar Upplýsingar Myndir


Upplýsingar

Tjaldsvæði
Að Hlöðum er stórt tjaldsvæði fyrir tjöld, hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagna. Á tjaldsvæðinu er hægt að komast í rafmagn, auk þess sem þar eru tvö tunnugrill, leiksvæði fyrir börnin og góð salernisaðstaða, auk þess sem hægt er að fara í sturtu og vaska upp undir berum himni. Aðstaða er fyrir tæmingu salerna frá húsbílum.

Sundlaug
Sundlaugin er austan við félagsheimilið og eru rúmgóðir búningsklefar og vatnsgufubað í kjallara félagsheimilisins auk útiklefa. Sundlaugin er 17 metra löng og við hana er einnig barnavaðlaug með rennibraut og tveir heitir pottar. Hægt er að semja um leigu á sundlauginni í tengslum við leigu á tjaldsvæðinu og félagsheimilinu utan opnunartíma. Opnunartími sundlaugarinnar er alla daga frá kl. 13.00 til kl. 19.00 en lokað á þriðjudögum. Sundlaugin er opin frá 1. júní til ágústloka.

Hernámssetur
Hernámssaga Hvalfjarðar er mikil og merk og því hefur Hernámssetur verið sett upp að Hlöðum sem segir sögu hernáms í Hvalfirði frá árunum 1940 til 1945. Hernámsetrið að Hlöðum hefur skapað spennandi sýningu þar sem sjá má minjar sem tengjast sögu og menningu þeirra atburða sem urðu í Hvalfirði á þessum umrótatímum.

Skipulagning viðburða
Nýjir viðburðir, frjó hugsun og ný reynsla.

Viltu gera vel við viðskiptavini þína, er fyrirtækið að skipta um húsnæði, áttu von á erlendum gestum eða líður að árshátíð? Hvert sem tilefnið er, þá útfærir starfsfólk Hlaða viðburðinn með glæsibrag og viðskiptavininum til sóma. Bókaðu fund með starfsfólki Hlaða og fáðu að vita hvað við getum boðið fyrirtækinu þínu.

Hjá okkur starfar hópur fólks með mikla reynslu, ferskar hugmyndir og fagleg vinnubrögð. Starfsfólk Hlaða hefur á síðastliðnum árum getið sér gott orð fyrir skipulagningu ýmissa viðburða fyrir íslensk fyrirtæki, jafnt á Íslandi sem á erlendri grundu. Viðskiptavinir okkar leita aftur til okkar þegar kemur að skipulagningu næsta viðburðar. Betri meðmæli eru ekki til.



[TIL BAKA]   [FORSÍÐA]


· Fleiri myndir
· Teikningar af sal
· Gátlisti fyrir veisluna [pdf]

Veislur
· Afmælið
· Brúðkaupið
· Fermingin
· Jólahlaðborðið
· Samkoman
· Ættarmótið

Fyrirtæki
· Óvissu & hvataferðin
· Bekkjarmótið

· Hópefli
· Sérferðir

Ráðstefnur
· Ráðstefnan
· Fundurinn
· Starfsdagar

Ættarmót
· Tjaldsvæði
· Sundlaug
· Hernámssetur
· Skipulagning viðburða

Gull     FÉLAGSHEIMILIÐ HLAÐIR · HVALFJARÐASTRÖND · SÍMI: 433 8877 · SUNDLAUG SÍMI: 433 8980 · GAUI@GAUILITLI.IS · FACEBOOK