Starfsdagar
Faglegir, fræðandi og skapandi.
Starfsfólkið að Hlöðum leggur mikinn metnað í undirbúning og framkvæmd starfsdaga fyrir stór sem smá fyrirtæki. Dagarnir eru sniðnir út frá þörfum hvers fyrirtækis fyrir sig og áhersla lögð á að uppfylla allar væntingar viðskiptavinarins og gera upplifunina þannig einstaka.
Hvað er starfsdagur?
Á starfsdeginum taka allir starfsmenn þátt og vinna saman að fyrirframsettum markmiðum. Hér gefst kjörið tækifæri til að kynna nýjar áherslur í rekstrinum, fara yfir markmið og gildi fyrirtækisins og móta framtíðina. Einnig má fara yfir hvað hefur tekist vel upp og hvað þarf að laga.
Hvað er gert?
Starfsfólk Hlaða fundar með þínu fólki til þess að greina þarfir ykkar og óskir. Okkar þekking og reynsla skilar sér við undirbúning og umsjón starfsdaga enda skiptir gríðarlegu máli að velja rétta umgjörð og þá dagskrá sem skilar settum markmiðum. Við fögnum hverslags hugmyndum, tökum þátt í hugmyndavinnunni, sköpum umgjörðina og stemminguna, útbúum dagskrá, boðskort og fylgihluti og sjáum um að sá árangur sem sóst er eftir náist.
[TIL BAKA] [FORSÍÐA] |