Heim Upplýsingar Upplýsingar Upplýsingar Myndir


Sérferðir

Öðruvísi og sérsniðnar.
Hlaðir bjóða upp á skemmtilegar sérferðir fyrir fyrirtæki, stofnanir og aðra hópa. Við tökum að okkur allan undirbúning og sjáum um öll smáatriðin. Við setjum saman ferðir í tengslum við viðburði hjá fyrirtækjum, hvort sem um er að ræða árshátíðir, ferðir með viðskiptavini, vinnufundi eða hvataferðir á fjarlægar slóðir. Við höfum aðgang að einvala liði fólks með mikla reynslu af skipulagningu og framkvæmd sérferða bæði innanlands og erlendis.

Við leggjum mikla áherslu á fyrsta flokks aðbúnað, afþreyingu og sérfróða fararstjóra, sem í samvinnu við samstarfsaðila okkar leggja sig fram við að gera upplifunina sem ánægjulegasta. Engar tvær ferðir eru eins hjá okkur því við vitum að hver hópur hefur mismunandi þarfir og markmið. Við bjóðum þjónustu sem er sérsniðin að óskum hver og eins viðskiptavinar. Við kappkostum að gera ferðina þína sem ánægjulegasta.

[TIL BAKA]   [FORSÍÐA]

· Fleiri myndir

Veislur
· Afmælið
· Brúðkaupið
· Fermingin
· Jólahlaðborðið
· Samkoman
· Ættarmótið

Fyrirtæki
· Óvissu & hvataferðin
· Bekkjarmótið

· Hópefli
· Sérferðir

Ráðstefnur
· Ráðstefnan
· Fundurinn
· Starfsdagar

Ættarmót
· Tjaldsvæði
· Sundlaug
· Hernámssetur
· Skipulagning viðburða

Gull     FÉLAGSHEIMILIÐ HLAÐIR · HVALFJARÐASTRÖND · SÍMI: 433 8877 · SUNDLAUG SÍMI: 433 8980 · GAUI@GAUILITLI.IS · FACEBOOK