Hvataferðir
Það stoðar lítt að ná til þeirra sem eru með hugann víðs fjarri. Komdu með fundinn eða námskeiðið á Hlaðir og hópurinn þinn slakar mun betur á og þú nærð miklu betur til hans. Í hádegisverðarhlé eru bornar fram léttar veitingar og eftir rjúkandi kaffibolla og ferskan andvara fjarðarins eru allir klárir til að halda áfram. Tölvutengd tússtafla, þráðlaust net, skjávarpi, stórt svið og hljóðkerfi. Hvort sem þú þarft að ljúka stefnumótun, áætlanagerð eða hugmyndavinnu. Hlaðir eru staðurinn.
Skemmtun, fræðsla og efling liðsheildar. Hvataferðir að Hlöðum njóta sívaxandi vinsælda og henta vel fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum. Við leggjum mikla áherslu á fræðandi, fjölbreytta og skemmtilega dagskrá, þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Ferðunum er ætlað að auka þekkingu, skemmta starfsfólki og hrista það saman í afslöppuðu og skemmtilegu andrúmslofti. Tilvalið er að blanda hvataferðum við fundi, árshátíðir, starfsmannadaga eða aðra atburði hjá fyrirtækinu.
Engar tvær ferðir eru eins hjá okkur, enda hefur hver vinnustaður og hver hópur mismunandi þarfir og markmið sem starfsfólk Hlaða vinnur út frá. Við leggjum allan okkar metnað í að veita hámarks gæði þegar kemur að uppákomum, veitingum og annarri upplifun. Við vinnum einungis með reyndum og traustum þjónustuaðilum til að tryggja örugga og fagmannlega útkomu. Hvataferðir eru tilvaldar þegar þakka á starfsfólki fyrir vel unnin störf, fagna góðum árangri og/eða auka samheldni og þekkingu starfsmanna. Notaðu tækifærið og komdu fólkinu þínu á óvart með frábærri hvataferð og náðu þannig settu marki.
[TIL BAKA] [FORSÍÐA] |
 |

· Fleiri myndir
· Teikningar af sal
· Gátlisti fyrir veisluna [pdf] |