Bekkjarmótið
„Við verðum að fara að hittast“
Hvers vegna ekki að drífa þá í því? Það er ekki svo mikið mál. Ein facebook-síða og gamli árgangurinn nær saman á augabragði. Bókið fyrst daginn hjá okkur og þá er ykkur ekkert að vanbúnaði.
Finnið gamlar bekkjarmyndir og sýnið á skjávarpanum, endurvekið gömlu hljómsveitina við þetta tækifæri, þeir hafa engu gleymt. Barinn er opinn og smáréttahlaðborðið vekur lukku. Kýlum á þetta krakkar!
|